Home Fréttir Í fréttum Skóflustunga tekin að nýju hjúkrunarheimili á Höfn

Skóflustunga tekin að nýju hjúkrunarheimili á Höfn

84
0
Mynd: Sveitarfélagið Hornafjörður

Heilbrigðisráðherra ásamt tíu elstu íbúum Hornafjarðar tóku í vikunni fyrstu skóflustungurnar að nýju hjúkrunarheimili á Höfn sem er áætlað að verði tekið í notkun árið 2024.

<>

Framkvæmdin felur í sér 1.400 fermetra viðbyggingu við eldra húsnæði Skjólgarðs sem jafnframt verður endurgert. Hjúkrunarrýmum mun fjölga um sex og aðbúnaður fyrri íbúa breytast til hins betra.

Á Skjólgarði eru núna 24 hjúkrunarrými og nær öll þeirra eru tvíbýli. Með framkvæmdinni verða öll hjúkrunarrýmin einbýli, 20 þeirra í nýbyggingunni og 10 í núverandi húsnæði Skjólgarðs. Húsheild ehf. mun sjá um framkvæmdirnar sem áætlað er að kosti tæpar 2,5 milljónir króna. Ríkissjóður mun fjármagna 75,3% kostnaðarins á móti 24,7% hlut sveitarfélagsins.

Heilbrigðisráðherra við störf. Mynd: Sveitarfélagið Hornafjörður

Mikilvægt er að koma til móts við nútímakröfur um aðbúnað fyrir íbúa og starfsfólk og í samræmi við lög um málefni aldraðra er unnið að því að fækka fjölbýlum. Stór þáttur í uppbyggingu hjúkrunarheimila felst því í að bæta eldra húsnæði í samræmi við gildandi viðmið um skipulag hjúkrunarheimila. Á framkvæmdaáætlun til ársins 2025 er stefnt að því að hlutfall einbýla verði komið í 93,7%.

Heimild: Stjornarradid.is