Home Fréttir Í fréttum Tjakkurinn gerði gæfumuninn þegar seinni vindmyllan var felld

Tjakkurinn gerði gæfumuninn þegar seinni vindmyllan var felld

105
0
Vindmyllan féll með afli til jarðar. VÍSIR/EGILL

Seinni vindmyllan í Þykkvabæ féll til jarðar á fjórða tímanum í dag eftir að sérfræðingar Hringrásar skáru hana í sundur. Tjakkur gerði gæfumuninn í þetta skipti.

<>

Tvær vindmyllur hafa staðið við Þykkvabæ í tæpan áratug en þær eyðilögðust báðar í bruna, önnur árið 2017 og hin um síðustu áramót. Önnur þeirra var sprengd niður af sprengjusveit Landhelgisgæslunnar 4. janúar síðastliðinn eftir sex tilraunir. Aðgerðin tók átta klukkustundir.

Aðgerðin í dag tók mun skemmri tíma, eða um tvo tíma. Vindmyllan virtist reyndar ætla að láta bíða eftir sér því ekki fór hún niður eftir fyrsta skurðinn í gegnum hana. Starfsmenn Hringrásar skáru þá meira í vindmylluna og beittu einnig tjakki,  sem virðist hafa gert gæfumuninn.

Hlupu burt þegar hún féll

„Þetta gekk bara ágætlega. Við hefjum viljað vera búnir aðeins fyrr,“ sagði Sigmar Eðvardsson, einn eigenda Hringrásar, í viðtali við Hallgerði Kolbrúnu E. Jónsdóttur, fréttamann okkar sem fylgdist með á vettvangi ásamt Agli Aðalsteinssyni, tökumanni.

Sjá mátti starfsmenn Hringrásar hlaupa í burtu frá vindmyllunni þegar hún byrjaði að falla. Sigmar telur líklegt að rokið á vettvangi hafi mögulega tafið eitthvað fyrir.

„Það er mjög líklegt að það hafi gert það að verkum að hún féll ekki strax í byrjun, vindurinn. Við það að fá tjakkinn undir þá skipti það máli.“

Um 60 tonn af stáli liggja nú á jörðinni við Þykkvabæ. Starfsmenn Hringrásar munu hefjast handa á eftir við að brytja hana niður. Stálið verður flutt til Reykjavíkur og þaðan erlendis til endurvinnslu.

Heimild: Visir.is