Home Fréttir Í fréttum 21.10.2022 Skógahverfi 3C og 5 – Gatnagerð og lagnir

21.10.2022 Skógahverfi 3C og 5 – Gatnagerð og lagnir

288
0
Ljósm. mm.

Akraneskaupstaður í samvinnu við Veitur ohf., Ljósleiðarann ehf og Mílu ehf., óskar eftir tilboði í gatnagerð og lagnir í nýju hverfi, Skógahverfi á Akranesi.

<>

Í nýbyggingarhverfinu er um að ræða gatnagerð, stígagerð, götulýsing og lagningu allra veitukerfa og fjarskiptalagna í hluta af skipulagsáföngum Skógahverfi 3C og 5.

Nokkrar stærðir í verkinu:
– Gröftur                             105.000 m3
– Fylling                              115.000 m3
– Fráveitulagnir                         4.400 m
– Kaldavatnslagnir                     2.600 m
– Hitaveitulagnir                        4.500 m

Verkið er með áfangaskilum 15. janúar 2023, 30. júlí 2023, 30. október 2023 og verklok eru 30. ágúst 2024. Verkið er auglýst á EES svæðinu.

Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá föstudeginum 16. september 2022 í gegnum útboðsvef https://mannvit.ajoursystem.is/.

Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 11:00 föstudaginn 21. október 2022.  Fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir opnun tilboða.

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs

Sjá frekar