Unnið er að breytingum á deiliskipulagi fyrir Kirkjusandslóðina sem felur í sér að byggð verða fimm hús með um 220 íbúðum. Nágrannar hafa nokkrar áhyggjur af byggingarmagninu en skipuleggjendur segja áformin mun betri en gert var ráð fyrir í gildandi skipulagi.
Samkvæmt gildandi deiliskipulagi frá 2016 var gert ráð fyrir blandaðri byggð á Kirkjusandi þar sem gamla frystihúsið, síðar höfuðstöðvar Íslandsbanka, yrði hluti af þeirri byggð. Síðar kom í ljós að húsið er mikð skemmt af raka og myglu og ákveðið var að rífa það. Nú stendur til að byggja hús sem minnir mjög á gamla frystihúsið en liggur framar í ljóðinni.
Í húsinu verða íbúðir en þjónusta á jarðhæð. Að auki stendur til að byggja fjögur hús á baklóðinni. Þegar flogið er á dróna yfir gömlu Íslandsbankabygginguna og sést stór lóð þar á bakvið sem er ekkert nýtt í dag.
Breyting hefur verið gerð á deiliskipulaginu út frá verðlaunatillögu úr samkeppni um þróun svæðisins fyrir tveimur árum. Steinþór Kári Kárason arkitekt hjá Kurt og pí segir að nú sé gert ráð fyrir íbúðarhúsnæði í stað atvinnuhúsnæðis.
„Þetta eru um 220 íbúðir samtals. Það er einhver þjónusta þarna líka. Þetta eru hefðbundnar íbúðir en að hluta til er gert ráð fyrir svo kölluðum hagkvæmum íbúðarkostum,“ segir Steinþór Kári. Þarna verði almenningsrými fyrir fólk og í fyrsta skipti farið eftir nýjum reglum í breyttu aðalskipulagi um lágmarksstærð íverurýma á lóð sem njóti lágmarks sólar dag hvern.
Steinþór Kári segir mögulegt að einhverjar íbúðanna verði ætlaðar stúdentum. Nágrannar fjölmenntu á kynningarfund Íslandssjóða á áætlununum í dag. Björn Magnús Björgvinsson íbúi á Kirkjusandi segir fólk hafa nokkrar áhyggjur á byggingarmagninu.
„Við nefnum það til sögunnar íbúar á Kirkjusandi eitt, þrjú og fimm og þar eru 57 íbúðir. Þarna eiga að koma á samsvarandi reit 225 íbúðir. Það veldur okkur áhyggjum. Við erum mjög fegin og fögnum því að þetta hús verði rifið,” segir Björn Magnús.
Steinþór Kári segir áformin mun álitlegri en samkvæmt gildandi skipulagi. Þar hafi verið gert ráð fyrir að byggja eina stóra og mjög óaðgengilega byggingu á lóðinni.
„Það sem við erum að gera í staðinn er að klára þarna göngugötu sem liggur í gegnum Kirkjusandsbyggðina. Endar svo í torgi sem aftur opnast út í hverfið. Þannig að okkar mati er þessi útfærsla miklu betur til þess bær að tengjast út í hverfið og þar af leiðandi verða hluti af því,“ segir Steinþór Kári Kárason.
Björn Magnús segir fyrirhugaðar byggingar hærri en aðrar í framlínunni. Þá óttist íbúar myndun vindsveipa eins og myndast hefðu í Borgartúni í Bríetartúni við nýbyggingarnar þar.
Er ekki eðlilegt að borgin vaxi, líka þetta rótgróna hverfi sem vissulega er þarna á bakvið?
„Við höfum ekkert á móti nýbyggingum á þessum reit. Það er fyrst og fremst hæðin og fjöldi íbúða sem við höfum áhyggjur af,“ segir Björn Magnús Björgvinsson.
Heimild: Visir.is