Framkvæmdir við nýjan leikskóla í Urriðaholti, Urriðaból, ganga vel og samkvæmt áætlun. Búið er að ráða í margar stöður í leikskólanum, þar á meðal leikskólastjóra, aðstoðarleikskólastjóra og sex deildarstjóra.
Framkvæmdir við nýjan leikskóla í Urriðaholti, Urriðaból, ganga vel og samkvæmt áætlun. Leikskólinn tekur til starfa nú í byrjun hausts og verður fyrst um sinn staðsettur við Kauptún í húseiningum sem reistar hafa verið á staðnum. Urriðaból í Kauptúni verður sex deilda leikskóli fyrir rúmlega 90 börn og er undanfari nýs leikskóla sem verður byggður við Holtsveg í Urriðaholti.
Stærð lóðarinnar í Kauptúni er um 5.000 m2 með bílastæðum, heildarstærð húsnæðis er um 931,1 m2. Þegar Urriðaból við Holtsveg verður tekið til starfa mun skólinn sinna allt að 210 börnum.
Undirbúningur fyrir haustið gengur vel og búið er að ráða í margar stöður í leikskólanum, þar á meðal leikskólastjóra, aðstoðarleikskólastjóra og sex deildarstjóra.
Almar Guðmundsson bæjarstjóri heimsótti leikskólann á dögunum og hitti þar fyrir fulltrúa Skóla ehf sem munu sjá um rekstur skólans ásamt verktökum. „Það er ánægjulegt að framkvæmdir við Urriðaból ganga vel og að samstarfið við Skóla ehf. fer vel af stað. Skólinn mun opna í september og við hlökkum til að taka hann í notkun og taka á móti börnum og foreldrum þeirra.“
Skólar ehf leggja áherslu á heilsueflandi skólastarf
Garðabær og Skólar ehf gerðu með sér samning fyrr í sumar um rekstur leikskólans Urriðabóls við Kauptún. Samningurinn er til þriggja ára og í honum er kveðið á um að Skólar ehf. bera ábyrgð á framkvæmd faglegs leikskólastarfs samkvæmt aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum ásamt rekstrarþáttum tengdum leikskólastarfinu.
Skólar ehf er liðlega 20 ára fyrirtæki sem er í dag að reka fjóra heilsuleikskóla, Heilsuleikskólann Krók í Grindavík, Heilsuleikskólann Kór í Kópavogi, Heilsuleikskólann Skógarás í Reykjanesbæ og Heilsu-ungbarnaskólann Ársól í Reykjavík. Allir leikskólar Skóla ehf starfa samkvæmt Heilsustefnu, sem kennd er við Unni Stefánsdóttur, og hafa auk þess tekið virkan þátt í þróun verkefnisins Heilsueflandi leikskóli í samvinnu við Embætti landlæknis.
Heimild: Garðabær.is