Home Fréttir Í fréttum 08.08.2022 Ármúli 6 – Múlaborg, viðbótarhúsnæði – stækkun á lóð

08.08.2022 Ármúli 6 – Múlaborg, viðbótarhúsnæði – stækkun á lóð

248
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Ármúli 6 – Múlaborg, viðbótarhúsnæði – stækkun á lóð, útboð 15614.

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl.14:30, miðvikudaginn 20. júlí n.k., á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is   Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað. 

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 8. ágúst 2022.

 

Lauslegt yfirlit yfir verkið 
Verkið snýr að gerð leikskólalóðar fyrir nýtt viðbótarhúsnæði Múlaborgar við Ármúla 6, 108 Reykjavík. Um er að ræða endurgerð á suðausturhluta lóðar Ármúla 6 ásamt gerð upphitaðs göngustígs yfir á lóð Múlaborgar að Ármúla 8A en svæðið er u.þ.b 950 m² að stærð. Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða.

Framkvæmdatími – verklok 
Framkvæmdum skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15.Október 2022. Verkinu telst ekki lokið af hálfu verktaka fyrr en hann hefur staðið að fullu við skuldbindingar sínar samkvæmt útboðsgögnum. Þá skal aðstaða verktaka hafa verið fjarlægð og vinnusvæðið hreinsað að fullu.