Home Fréttir Í fréttum 25.07.2022 Tjarnarborg – Endurgerð lóðar 2022

25.07.2022 Tjarnarborg – Endurgerð lóðar 2022

147
0
Leik­skól­inn Tjarn­ar­borg-Tjörn.

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Tjarnarborg – Endurgerð lóðar 2022, útboð 15506

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl.14:00, þriðjudaginn 12. júlí n.k., á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is  Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað. 

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 25. júlí 2022.

Lauslegt yfirlit yfir verkið 
Verkið snýr að endurgerð lóðar Tjarnarborgar við Tjarnargötu 33, 101 Reykjavík. Um er að ræða endurgerð á allri lóð leikskólans en það svæði er u.þ.b 640 m² að stærð. Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Framkvæmdatími – verklok
Framkvæmdum skal vera að fullu lokið eigi síðar en 30.september 2022 Verkinu telst ekki lokið af hálfu verktaka fyrr en hann hefur staðið að fullu við skuldbindingar sínar samkvæmt útboðsgögnum. Þá skal aðstaða verktaka hafa verið fjarlægð og vinnusvæðið hreinsað að fullu. Komi til vetraraðstæðna verður verkið sett í biðstöðu.