Home Fréttir Í fréttum 26.07.2022 Langholtsskóli – Endurgerð lóðar 2022

26.07.2022 Langholtsskóli – Endurgerð lóðar 2022

136
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Langholtsskóli –  Endurgerð lóðar 2022, útboð 15510

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl.14:00, þriðjudaginn 12. júlí n.k., á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is  Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað. 

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 26. júlí 2022.

 

Lauslegt yfirlit yfir verkið 
Verkið snýr að endurgerð á hluta lóðar Langholtsskóla við Holtaveg 23, 104 Reykjavík. Um er að ræða endurgerð á suð-vestur hluta skólalóðar en það svæði er u.þ.b 1700 m² að stærð. Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Framkvæmdatími – verklok
Framkvæmdum skal vera að fullu lokið eigi síðar en 30.september 2022 Verkinu telst ekki lokið af hálfu verktaka fyrr en hann hefur staðið að fullu við skuldbindingar sínar samkvæmt útboðsgögnum. Þá skal aðstaða verktaka hafa verið fjarlægð og vinnusvæðið hreinsað að fullu. Komi til vetraraðstæðna verður verkið sett í biðstöðu.