Home Fréttir Í fréttum Segir borgarlínu mistök og halda hefði átt áfram með gamla strætókerfið

Segir borgarlínu mistök og halda hefði átt áfram með gamla strætókerfið

179
0

Elías Elíasson verkfræðingur telur að áform um borgarlínu byggi á óskhyggju og draumórum. Mun vænlegra hefði verið að byggja áfram á gamla strætisvagnaleiðakerfinu við hönnun almenningssamgangna og efla það. Þetta kemur fram í aðsendri grein Elíasar í Morgunblaðinu í dag.

<>

Elías segir að í skýrslunni „Höfuðborgarsvæðið 2040“ þar sem gerð er grein fyrir áformum um borgarlínu sé byggt á þeim félagslega sparnaði sem hlýst af því þegar stór hluti íbúa hættir að nota einkabíl og notar í staðinn almenningssamgöngur. Síðan segir Elías:

„Auðvitað kem­ur fram fé­lags­leg­ur sparnaður þegar ábati fólks af að hætta að reka bíla er skoðaður og eng­in til­raun gerð til að sýna fram á að bætt­ar al­menn­ings­sam­göng­ur geti valdið slíkri hug­ar­fars­breyt­ingu. Eig­in bíll er sjálf­stæður draum­ur sem fólk læt­ur ræt­ast þegar það hef­ur efni til. Aðgengi að al­menn­ings­sam­göng­um hef­ur þar tak­mörkuð áhrif, sér­stak­lega fjarri hinu öfl­uga lest­ar­kerfi Evr­ópu en ekki er kost­ur á að koma upp hliðstæðu þess hér sök­um fá­menn­is. Samt er full­yrt í skýrsl­unni að ábat­inn stafi af bætt­um al­menn­ings­sam­göng­um og styttri vega­lengd­um í þétt­ari byggð.“

Áform um borgarlínu haldast í hendur við þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu en Elías telur að þétting byggðar eigi stóran þátt í þeirri hækkun á fasteignamarkaði sem orðið hefur. Síðan segir Elías:

„Að halda áfram með gamla strætó­kerfið hefði því verið hin rétta niðurstaða þess­ar­ar sviðsmynda­grein­ing­ar og end­ur­bæt­ur á leiðaneti þá verið eðli­legt fram­hald.“

Segir Elías að undirbúningur borgarlínu sé ekki byggður á raunhæfum forsendum heldur á óskhyggju um fækkun bíla. Hann vill fremur að ráðist sé í gerð mislægra gatnamóta:

„Nauðsyn þess að greiða fyr­ir um­ferð með mis­læg­um gatna­mót­um er orðin auðsæ. And­stæðing­ar þeirra hafa því snúið við blaðinu að nokkru og vilja nú grafa þau niður og tengja sam­an með löng­um niður­gröfn­um steypu­stokk­um og lok ofan á þar sem vera skal ann­ar veg­ur fyr­ir borg­ar­línu og um­ferð um hverfið. Þetta er dýr vega­gerð og ókleift að tengja við þver­göt­ur svo vel fari. Slík­ir stokk­ar bæta um­ferð tak­markað. Þess­um áform­um tel­ur SFA rétt að fresta en leggja beri áherslu á að hafa þjóðvegi í þétt­býli án um­ferðarljósa og hanna mis­læg gatna­mót þannig að minni sjón­meng­un sé að þeim jafn­framt sem gætt sé að greiðri um­ferð gang­andi og hjólandi. Vel hönnuð mis­læg gatna­mót geta þannig orðið virk­um ferðamát­um greiðari og ör­ugg­ari en mörg ljós­a­stýrð gatna­mót eru nú.“

Heimild: Dv.is