Opnun tilboða 5. júlí 2022. Nýbygging Vestfjarðavegar á um 12,6 km kafla. Vegurinn er að mestu leyti byggður í nýju vegstæði en að hluta til í núverandi vegstæði. Inn í verkinu er einnig gerð námuvegar að námu í Trölladal og gerð tveggja áningarstaða.
Helstu magntölur eru:
– Bergskering í vegsvæði 495.200 m3
– Bergskering í námu 22.600 m3
– Fyllingar úr skeringum 509.400 m3
– Fláafleygar úr skeringum 220.500 m3
– Ræsalögn 1.250 m
– Styrktarlag 57.500 m3
– Burðarlag 24.000 m3
– Klæðing 106.400 m2
– Vegrið 1.660 m
Verkinu skal að fullu lokið 15. júlí 2024.