Home Fréttir Í fréttum Ráðuneyti setur áform um „nýjan Skerjafjörð“ á ís

Ráðuneyti setur áform um „nýjan Skerjafjörð“ á ís

85
0
Mynd: ASK Arkitektar / Reykjavíkurborg
Innviðaráðuneytið telur nýja byggð í Skerjafirði ógna rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar og krefst þess að framkvæmdum á svæðinu verði frestað. Starfandi borgarstjóri segir borgarstjórn muni fylgja ráðleggingum ráðuneytisins.

Svæðið sem hefur verið kallað „Nýi Skerjafjörður“ liggur nærri Reykjavíkurflugvelli og er í raun framlenging á Einarsnesi. Í fyrsta hluta framkvæmdanna, sem áttu að hefjast á næsta ári, átti að byggja 690 íbúðir.

<>

Í bréfi sem innviðaráðherra sendi borgarstjórn í síðustu viku segir að framkvæmdir við byggðina dragi verulega úr rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar. Því hefur ráðuneytið skipað starfshóp sérfræðinga sem skilar niðurstöðum 1. október.

Óásættanlegt að fullkanna ekki áhrif á rekstur flugvallarins

Þar segir að það sé „með öllu óásættanlegt að farið sé í slíkar framkvæmdir án þess að fullkannað sé hvort – og þá með hvaða hætti, sé tryggt að þær hafi ekki neikvæð áhrif á rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar. Ráðuneytið geti ekki fallist á að framkvæmdir hefjist, nema sýnt sé fram á að flug- og rekstraröryggi sé ekki stefnt í hættu.“

„Ráðuneytið leggur því þunga áherslu á að Reykjavíkurborg fresti öllum áformum um úthlutun lóða og byggingaréttar og hefji engar framkvæmdir á svæðinu fyrr en niðurstaða rannsóknar liggi fyrir“ segir í bréfi innviðaráðuneytis.

Vonast til þess að uppbyggingin verði að veruleika

Einar Þorsteinsson, starfandi borgarstjóri – í fjarveru Dags B. Eggertssonar, segir borgina ekki mega við því að missa 690 nýjar íbúðir.

Nú er ráðuneytið að setja spurningarmerki við, finnst manni í þessu bréfi, undirbúninginn að þessu og kannski að ýja að því að það hafi skort samráð við sérfræðinga Isavia. Hvert er þitt mat á því?

Já, að sjálfsögðu það er búið að úthluta tveimur lóðum þarna og þriðja íbúðin átti að koma til meðferðar borgarráðs á síðasta fundi. Því var frestað, í ljósi afstöðu ráðuneytisins.

Er inn í myndinni að þessi framkvæmd verði alfarið blásin af? 

Ég vona ekki, ég vona það verði hægt að byggja þarna fallegt hverfi, sem þjónar þessum hópum sem að eru í sárri neyð eftir húsnæði, um leið að tryggja rekstraröryggi flugvallarins.

Heimild: Ruv.is