Home Fréttir Í fréttum Fé­lag píp­u­lagn­ing­a­meist­ar­a geng­ur til liðs við Sam­tök iðn­að­ar­ins

Fé­lag píp­u­lagn­ing­a­meist­ar­a geng­ur til liðs við Sam­tök iðn­að­ar­ins

112
0
Árni Sigurjónsson, formaður SI, og Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður FP, skrifa undir samkomulagið í Húsi atvinnulífsins.

Félag pípulagningameistara, FP, hefur gengið til liðs við Samtök iðnaðarins, SI, en samkomulag þess efnis var undirritað í Húsi atvinnulífsins í dag.

<>

Með samkomlaginu verða allir félagsmenn Félags pípulagningameistara sem stunda atvinnurekstur félagsmenn í Samtökum iðnaðarins og þar með í Samtökum atvinnulífsins. Þannig bætast 140 nýir félagsmenn Félags pípulagningameistara í hóp þeirra 1.400 fyrirtækja sem eru nú þegar í Samtökum iðnaðarins. Inngöngu í Félag pípulagningameistara hafa þeir einir sem hafa meistararéttindi og löggildingu í pípulögnum.

Með inngöngu Félags pípulagningameistara verða í fyrsta sinn öll meistarafélög iðngreina í bygginga- og mannvirkjaiðnaði hér á landi innan vébanda Samtaka iðnaðarins. En fyrir eru meistarafélög í blikksmíði, dúklögn- og veggfóðrun, innréttinga- og húsgagnasmíði, skrúðgarðyrkju, húsasmíði, málaraiðn, múraraiðn og rafverktöku.

Árni Sigurjónsson, formaður SI: „Við fögnum því að fá pípulagningameistara til liðs við okkur og hlökkum til samstarfsins. Þetta er stórt skref sem er stigið nú þegar allar iðngreinar sem tilheyra bygginga- og mannvirkjaiðnaði eru samankomnar undir hatti Samtaka iðnaðarins. Með þessu eflum við samtökin og rödd þessara mikilvægu atvinnugreina enn frekar.“

Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður FP: „Félagsmenn okkar samþykktu aðild að Samtökum iðnaðarins í rafrænni kosningu og verðum við þar með þátttakendur í stærstu og öflugustu hagsmunasamtökum atvinnurekenda á Íslandi. Við eigum samleið með öðrum meisturum í bygginga- og mannvirkjagerð. Framundan er því spennandi samstarf en saman ætlum við að ráðast í mörg krefjandi verkefni.“

Á myndinni eru frá vinstri: Magnús Björn Bragason, stjórnarmaður FP, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, Árni Sigurjónsson, formaður SI, Sigurður Reynir Helgason varamaður FP, Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður FP, Kári Samúelsson, gjaldkeri FP, Almar Gunnarsson, varaformaður FP, og Ársæll Páll Óskarsson, ritari FP.

Heimild: Frettabladid.is