Home Fréttir Í fréttum Getur einhver reddað rafvirkja?

Getur einhver reddað rafvirkja?

105
0
Mynd: Hjalti Haraldsson - RÚV
Illa gengur að fá rafvirkja til starfa. Formaður félags löggiltra rafvirkja segir getuleysi stjórnmálamanna um að kenna. Það bitni á stéttinni að þeir sem vilji læra fagið komist ekki í nám.

„Það er búið að ganga mjög illa að fá rafvirkja með reynslu. Þeir eru bara ekki til, eru ekki á lausu”. Segir Pétur Hákon Halldórsson. Engar umsóknir berast þegar auglýst er eftir rafvirkjum. „Við höfum lent í vandræðum þegar verkefnum fjölgar. Það er búið að vera mikill vandi hjá skólunum að taka við þeim sem vilja læra.  Húsnæðisskortur er alveg svakalegur. Fjármagn er greinilega skorið mikið niður og fylgir ekki þessum yfirlýsingum sem ráðamenn okkar gefa”

<>

Pétur situr í fagráði Tækniskólans. Hann segir að skólinn sé löngu sprunginn og henti ekki til verknáms. „Hann er barn síns tíma. Það var búið að ákveða að byggja nýjan skóla að okkur skilst en lóðin sem þeir töldu sig vera komna með var ekki fyrir hendi. Þannig að við erum komin á byrjunarreit”. Pétur segir að þar sem langt sé þar til nýr skóli verði tekin í notkun þurfi að leysa vandann með leiguhúsnæði.

Bitnar það á stéttinni að nemendur komist ekki í nám? „Já gríðarlega. Við finnum það á okkar skinni því við fáum ekki til okkar fullnuma rafvirkja” Pétur segir að um 200 ljúki sveinspróf á ári. Margir skila sér ekki á vinnumarkaðinn því sumir halda námi áfram. Kröfurnar hafa verið hertar og nú þarf einkunnina B í stærðfræði til að komast í nám.

„Þannig að iðnaðarmennirnir sem eru ekki jafn sleipir í stærðfræði og myndu vera áfram í greininni komast ekki að. Ég er búinn að bíða í næstum eitt og hálft ár eftir viðtali við menntamálaráðherra sem þá var. Síðan var skipt um ráðherra og komið nýtt ráðuneyti. Ég endurnýjaði viðtalsbeiðni við hann og þeirri beiðni hefur ekki verið svarað.

Ég held að málefnið sé bara of viðkvæmt.  Þeir geta ekki tekið á þessu. Þeir treysta sér ekki í þetta. Þetta er algjört getuleysi stjórnmálamanna sem þessu ástandi er um að kenna”, segir Pétur Hákon Halldórsson formaður félags löggiltra rafverktaka.

Heimild: Ruv.is