Home Fréttir Í fréttum Björg­ólfur kaupir 310 milljóna lúxus­í­búð

Björg­ólfur kaupir 310 milljóna lúxus­í­búð

343
0

Björgólfur Thor kaupir íbúð við Austurhöfn en íbúðin hefur hækkað um 55 milljónir króna í verði á níu mánuðum.

<>

Novator F11 ehf, eignarhaldsfélag í eigu Novator, fjárfestingafélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur fest kaup á 199 fermetra lúxusíbúð í Austurhöfn við hlið Hörpu á 310 milljónir króna. Fermetraverð er því yfir 1,5 milljónir króna.

Seljandi er GEVA, sem er í eigu Geirs Vals Ágústssonar fjármálastjóra og eins eigenda flugfélagsins Air Atlanta. GEVA keypti íbúðina í júlí á síðasta ári á 265 miljónir króna og hefur íbúðin því hækkað um 17% á tæpu ári.

Novator F11 var stofnað utan um ættaróðalið Fríkirkjuveg 11 sem Björgólfur Thor keypti af Reykjavíkurborg árið 2008 á 650 milljónir króna.

Samkvæmt ársreikningum félagsins hefur Björgólfur varið vel á þriðja milljarð króna í að gera upp Fríkirkjuveg 11 en Thor Jensen langafi Björgólfs lét byggja húsið á árunum 1907-1908.

Heimild: Vb.is