Vegagerðin óskar eftir tilboðum í verkið: Efnisvinnsla á Austursvæði 2022, malarslitlag.
Verkið felst í framleiðslu á 4 stöðum á Austurlandi.
Helstu magntölur eru, (unnið í 4 námum):
– Malarslitlagi (0/16) 14.000 m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 25. apríl 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. maí 2022.
Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.