Home Fréttir Í fréttum Talið er að tjónið fyrir Landsnet verði líklega yfir 100 milljónir króna

Talið er að tjónið fyrir Landsnet verði líklega yfir 100 milljónir króna

77
0
MYND/LANDSNET

Landsnet vonast til að ljúka viðgerða á byggðalínuhringnum á næstu tveimur sólarhringum. Línur löskuðust í óveðrinu í gærkvöldi og í nótt, en ljóst er að viðgerð á línum á Vestfjörðum mun taka lengri tíma. Í tilkynningu frá Landsnet segir að þegar verst lét hafi straumleysi verið víðtækt og rekstur flutningskerfisins hafi verið tvísýnn og sé það enn.

<>

Talið er að tjónið fyrir Landsnet verði líklega yfir 100 milljónir króna.

Á fjórða tug viðgerðarmanna eru nú að störfum um landið þar sem línur löskuðust eða á leið á vettvang.

17 möstur eru brotin í Breiðdalslínu 1.

Minnst 17 möstur eru brotin í Breiðadalslínu 1, sem liggur milli Mjólkárvirkjunar og Breiðdals við Önundarfjörð. Níu manna flokkur er á leið þangað og ljóst er að viðgerð muni taka nokkra daga. Þrátt fyrir að aðstæður séu sæmilegar og bilunin er á láglendi en ekki upp á heiði.

Þangað til línan verður komin í lag fá norðanverðir Vestfirðir rafmagn frá varaaflsstöðinni í Bolungarvík. Því verða skerðingar hjá kaupendum ótryggrar orku þar.

Þrettán manna viðgerðarflokkur lauk fyrr í dag viðgerð á Eyvindarárlínu 1, milli Hryggstekks í Skriðdal og Egilsstaða. Hún var biluð rétt við Hryggstekk og er nú komin í gagnið á ný. Viðgerðaflokkurinn fyrir austan er nú að störfum við Teigarhornslínu 1, milli Hryggstekks og Teigarhorns í Berufirði. Nokkur möstur eru brotin í henni rétt suður af Hryggstekk og standa vonir til að viðgerð ljúki á næsta sólarhring.

Minnst átta möstur eru brotin á Kópaskerslínu 1.

Minnst fjögur möstur eru brotin í Kópaskerslínu 1, sem liggur milli Laxárstöðvar út á Kópasker. Þá eru tvö möstur brotin við Valþjófsstaði og önnur tvö við Laxá.

Í tilkynningunni segir að björgunarsveitarmenn kanni nú ástand línunnar og að dísilstöð sjái íbúum á Kópaskeri fyrir rafmagni. Sjö manna vinnuflokkur er á leið á svæðið til að framkvæma viðgerðir og vonast er til að þeim ljúki á morgun eða í síðasta lagi á fimmtudag.

Tvö möstur eru brotin í Rangárvallalínu 1.

Þá eru tvö möstur brotin í Rangárvallalínu 1, á milli Varmár og Akureyrar. Nánar tiltekið við bæinn Sólheima í Blönduhlíð. Viðgerðarmenn eru komnir á vettvang og er vonast til að viðgerðum ljúki í kvöld.

Verið er að meta heildartjónið enn, en aðaláhersla hefur verið lögð á að koma raforkuflutningum í lag á nýjan leik.

„Straumleysi í flutningskerfi Landsnets var óvenju víðtækt þegar verst lét í óveðrinu síðastliðna nótt og var rekstur kerfisins tvísýnn þegar straumlaust varð samtímis á Vestfjörðum, hluta Norðurlands og á Austurlandi. Rekstur flutningskerfisins er enn áhættusamur þar sem byggðalínuhringurinn er rofinn og kerfið rekið í aðskildum rekstrareiningum, svokölluðum eyjarekstri.“

Í tilkynningunni segir að truflanir og tjón varð einkum á eldri línum Landsnets þar sem vindur og ísing spilaði stóran þátt. Engar teljandi truflanir urðu hins vegar á línum á hæstu spennu og á hálendislínum.

Heimild: Rúv.is