Home Fréttir Í fréttum Skógarböðin opna ekki fyrr en allt er klárt

Skógarböðin opna ekki fyrr en allt er klárt

124
0
Skógarböðin eru að taka á sig mynd. VÍSIR/ARNAR

Það styttist í að Skógarböðin við Akureyri verði tekin í gagnið eftir miklar framkvæmdir í vetur. Búið er að prufukeyra böðin sem verða þó ekki opnuð fyrr en allt er klárt. Eigendurnir vilja ekki gefa upp nákvæma dagsetningu á opnun.

<>

Framkvæmdir hófust í ágúst og hafa iðnaðarmenn unnið hörðum höndum í allan vetur við Skógarböðin, sem staðsett eru við þjóðveg 1, steinsnar frá Akureyri. Eigendurnir, Hjónin Finnur Aðalbjörnsson og Sigríður María Hammer prísa sig sæla með snjólítinn vetur á Norðurlandi.

Skógarböðin séð úr lofti.
VÍSIR/ARNAR

„Við höfum verið heppin með veturinn. Það var ekki mikill snjór. Við steyptum síðustu steypuna í desember, í laugunum þannig að þetta hefði getað verið allt annað ef það hefði verið almennilegur vetur hérna, þá værum við sennilega ekki komin svona langt,“ segir Sigríður María.

Vatnið í böðin kemur úr Vaðlaheiðargöngunum. Hingað til hefur það runnið út í sjó, en nú verður því beint í Skógarböðin í gengum pípur úr göngunum.

„Það er búið að leggja vatnið. Við erum búin að taka við því formlega og það er búið að prufukeyra allan tæknibúnaðinn og þetta svínvirkar allt eins og þetta átti að gera,“ segir Finnur.

Búið að prufukeyra böðin

Eigendurnir fengu þannig forskot á sæluna og prófuðu böðin þegar allt var prufukeyrt.

„Það var rosa gaman, góð tilfinning. Við fórum hérna með fjölskylduna og börnin, þetta var ótrúlegt,“ segir Finnur.

Væntanlega tilhlökkun að leyfa öðrum að njóta?

„Algjörlega. Þetta verður alveg frábært. Okkur fannst þetta mjög gefandi og smá klapp á bakið vitandi það að þetta verður frábært, af því að maður fór svolítið blint í sjóinn,“ segir Sigríður María.

Opna þegar allt er tilbúið

Búið er að stækka laugina og þjónustuhúsið frá því sem fyrst var áætlað. Til að mynda er búið að bæta við öðrum bar svo ýmisleg sé nefnt. Segja má að tilhlökkunin á svæðinu eftir böðunum sé áþreifanleg.

Iðnaðarmenn vinna nú hörðum höndum að því að klára allt sem þarf að klára.
VÍSIR/ARNAR

„Það kemur alltaf fólk hérna á hverjum einasta degi og spyrja hvort það megi koma og skoða. Á ákveðnum tímapunkti urðum við bara að taka fyrir það því þetta var orðið það mikil umferð.“ segir Finnur.

Í fyrstu var áætlað að opna böðin í febrúar en ýmsar tafir á afhendingu á búnaði og aðföngum hefur tafið verkið. Finnur og Sigríður vilja því nú ekki gefa upp nákvæma dagsetningu á opnun.

„Ég get sagt ykkur það, þegar þetta er til.“

Þið náið sumrinu?

„Jájá, við náum sumrinu. Menn eru að horfa hérna á næstu vikur. Einu sinni ætlum við að opna í febrúar, svo ætluðum við að opna fyrir páska. Við opnum þetta bara þegar þetta er tilbúið. Við viljum ekki laska staðinn að það verði verið að vinna hérna eitthvað eftir að búið er að opna þannig að upplifunin verði bara góð og menn verði alsælir með þetta.“

Heimild: Visir.is