Home Fréttir Í fréttum Verktaki olli miklum skemmdum á Álftanesi

Verktaki olli miklum skemmdum á Álftanesi

415
0
Töluverðar skemmdir urðu á golfvellinum á Álftanesi Mynd: Samsett með myndum frá Golfklúbbi Álftaness

Björn Halldórsson, formaður Golfklúbbs Álftaness, þurfti að greina meðlimum klúbbsins frá vondum tíðindum í færslu sem birtist á Facebook í gær. Verktaki á vegum Garðabæjar hafði farið inn á völl golfklúbbsins á beltagröfu og eftir situr klúbburinn með töluverðar skemmdir á velli sínum.

<>

,,Í morgun gerðist sá atburður að verktaki ók inná völlinn á beltagröfu til að moka prufuholur vegna framkvæmda sem eru fyrirhugaðar á svæðinu,” segir í Facebookfærslunni á svæði Golfklúbbs Álftaness.

Björn segir þetta athæfi verktakans hafa komið stjórn golfklúbbsins í opna skjöldu. ,,En með fljótum viðbrögðum stjórnarmanna náðist að stöðva þessa framkvæmd. Við náðum því miður ekki að stöðva þetta nógu snemma því eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þá hafði verktakinn valdið miklum skemmdum á vellinum. Helst er að nefna flatirnar á 2, 3 og fjórðu.”

Björn segir verktakann hafa ekið þvert yfir flatirnar. ,,Einnig var ekið niður 4 braut og sporin í viðkvæmum vellinum eru mjög djúp.”

Hann segir forsvarsmenn golfklúbbsins þegar hafa átt samtal við Garðabæ. ,,Í þeim samtölum höfum við farið fram á að bærinn lagi þessar skemmdir um leið og hægt verði að fara með vélar inn á völlinn. Þrátt fyrir það verður öllum að vera ljóst að opnun vallarins verður ekki eins falleg og við vonuðumst eftir.”

Þær skýringar sem Golfklúbbur Álftaness fékk frá bænum hljóðuðu þannig að samskiptaleysi hafi orðið á milli starfsmanna Garðabæjar.

,,Verið er að senda út greiðsluseðla fyrir árið 2022 þessa dagana og verður fólk að meta það sjálft hvort það hafi þolinmæði í að spila völlinn í þessu ástandi en stjórn GÁ mun reyna allt til þess að raskið verði sem minnst,” segir Björn Halldórsson, formaður Golfklúbbs Álftaness í færslu sem birtist á Facebook síðu golfklúbbsins.

Heimild: Frettabladid.is