Home Fréttir Í fréttum Nýtt hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands rís á næstu þremur árum

Nýtt hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands rís á næstu þremur árum

305
0
Mynd úr tillögu hönnunarhópsins að nýbyggingu fyrir Heilbrigðisvísindasvið HÍ. Með nýbyggingunni, sem verður um 8.300 fermetrar, er ætlunin að sameina nær alla starfsemi Heilbrigðisvísindasviðs HÍ á einum stað. Nýbyggingin mun tengjast Læknagarði sem verður jafnframt endurgerður. Húsnæðið verður sérhannað miðað við þarfir sviðsins, kennslu- og rannsóknaaðstaða verður bætt og færð í nútímalegt horf og samnýting og sveigjanleiki verður aukinn til muna.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, nýsköpunar- og iðnaðarráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Egill Viðarsson, Ivon Stefán Cilia og Hrafnhildur Ólafsdóttir frá ráðgjafateymi sem samanstendur af Verkís, TBL arkitektum ehf. og John Cooper Architecture, undirrituðu í gær samning um fullnaðarhönnun á nýju húsi fyrir starfsemi Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.

<>

Auk þess vottuðu Inga Þórsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs, og Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, samninginn. Áætlað er að húsið verði risið á Hringbrautarsvæðinu í nágrenni nýs Landspítala um mitt ár 2025.

Hópur undir forystu Verkís varð hlutskarpastur í lokuðu útboði sem haldið var vegna hönnunar hússins. Hópinn skipa Verkís, John Cooper Architecture og TBL arkitektar sem samanstanda af fyrirtækjunum T.ark arkitektum ehf., Batteríinu sf. og Landslagi ehf.

Með nýbyggingunni, sem verður um 8.300 fermetrar, er ætlunin að sameina nær alla starfsemi Heilbrigðisvísindasviðs HÍ á einum stað. Nýbyggingin mun tengjast Læknagarði sem verður jafnframt endurgerður. Húsnæðið verður sérhannað miðað við þarfir sviðsins, kennslu- og rannsóknaaðstaða verður bætt og færð í nútímalegt horf og samnýting og sveigjanleiki verður aukinn til muna.

Húsið Eirberg, sem Hjúkrunarfræðideild HÍ hefur notað um árabil, verður nýtt áfram af sviðinu, meðal annars undir kennslu, færnibúðir og nemendaaðstöðu, og þá verður Sálfræðideild áfram með starfsemi í Nýja Garði.

Byrjað verður á að reisa nýbygginguna og verður starfsemin flutt í hana áður en hafist verður handa við endurgerð Læknagarðs. Er það gert til að halda samfellu í starfi Heilbrigðisvísindasviðs.

Áætlað er að framkvæmdir við nýbygginguna geti hafist í byrjun næsta árs og að hún verði tilbúin til notkunar um mitt ár 2025. Áætlað er að endurbótum á Læknagarði ljúki í árslok 2027.

„Mikilvægi heilbrigðisvísinda fyrir samfélagið vex stöðugt, er það bæði fyrir heilsueflingu og þjónustu og einnig fyrir það hve stór og kostnaðarsöm heilbrigðisþjónustukerfi eru.

Víða um heim eru því nýjar leiðir og lausnir og öflug heilbrigðisvísindi sett á oddinn. Það er því óhætt að segja að uppbyggingin sem er fram undan á Landspítalasvæðinu er ákaflega ánægjuleg og mikilvægur áfangi fyrir menntun, rannsóknir og nýsköpun í heilbrigðisgreinum og aukið samstarf Háskóla Íslands og Landspítala,“ sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, nýsköpunar- og iðnaðarráðherra.

©Kristinn Ingvarsson
Frá undirrituninni í Hátíðasal. Frá vinstri: Hrafnhildur Ólafsdóttir, Ivon Stefán Cilia, Egill Viðarsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Jón Atli Benediktsson, Runólfur Pálsson og Inga Þórsdóttir. 

„Með undirritun þessa samnings er stórt skref stigið í því að reisa nýtt hús fyrir Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands en slíkt hefur staðið til lengi. Heilbrigðisvísindasvið er dreift vítt og breitt um Reykjavík, allt frá Hofsvallagötu til Vínlandsleiðar, en með nýju byggingunni verður sviðið að mestu leyti sameinað við nýjan Landspítala við Hringbraut.

Landspítalinn er stærsti og mikilvægasti samstarfsaðili Háskóla Íslands og mun samstarfið á sviði kennslu, rannsókna, nýsköpunar og samfélagsþátttöku aukast enn frekar á næstu árum með uppbyggingunni sem fram undan er.

Fjárfesting í menntun og þekkingarsköpun er fjárfesting í framtíðinni og því markar undirritun þessa samnings hér á eftir ekki aðeins stórt skref fyrir okkur öll heldur í raun fyrir þjóðina alla,“ sagði Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.

„Hús sem styrkir enn frekar aðstöðu til menntunar heilbrigðisstarfsmanna til heilla fyrir land og þjóð
– Verkís byggir upp samfélög,“ sagði Egill Viðarsson, framkvæmdastjóri Verkís.

„Það er lykilatriði fyrir nám og rannsóknir í heilbrigðisvísindum og þar með fyrir alla þá sem þetta land byggja að fá nýja og endurnýjaða aðstöðu sem nú verður í því sem við höfum kallað Heilbrigðisvísindagarðar HÍ. Við hlökkum til að sjá nýtt hús rísa og verða sameinað Læknagarði í nálægð Eirbergs, Landspítala og háskólasvæðisins. Takk fyrir og megi okkur öllum ganga vel,“ sagði Inga Þórsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs.

„Langþráður draumur er að verða að veruleika. Hið nýja hús mun valda straumhvörfum í þróun kennslu og vísindastarfs innan Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Hús Heilbrigðisvísindasviðs mun án efa reynast mikilvægur hlekkur í uppbyggingu Landspítala sem háskólasjúkrahúss á alþjóðlegan mælikvarða,“ sagði Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala.

Heimild: Háskóla Íslands