Ríkiskaup fyrir hönd Isavia óska eftir tilboðum í verkið:
KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR Eldsneytis- og ídráttarlagnir í stæði 20 og 21
Opnunarfundur: 8.12.2015, 14:00
Almennt um verkið
Leggja skal eldsneytisafgreiðslulögn í flughlað suð-vestan Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, til norðurs um 60m, og ídráttarlagnir fyrir rafmagn við brún hlaðsins í þjónustuveg um 100m.
Verkið felst í því að saga í steypt/malbikað flughlað, rífa upp steypu/malbik, grafa skurði, sanda undir lagnir, leggja stállagnir, koma fyrir afgreiðslu- og tengibrunnum og ganga frá tengingum, fyrir eldsneyti. Einnig skal leggja ídráttarlagnir, úr plasti, fyrir rafmagnskapla og koma fyrir tengibrunnum. Síðan skal fylla með sandi/grús og þjappa.. Að lokum skal verktaki steypa/malbika nýja þekju eftir því sem við á. Setja skal vegrið við rafmagnstengistaði.
Fyrir eldsneytiskerfið leggur verkkaupi til brunna, húðuð stálrör og fittings.
Magntölur:
Sögun malbik/bikbundið burðarlag, 200 mm | 210 | m |
Upprif malbik/bikbundið burðarlag, 200 mm | 310 | m2 |
Sögun steypu, 300 mm | 200 | m |
Upprif Steypu, 300mm | 340 | m2 |
Uppgrafið efni ekið á jarðvegstipp | 370 | m3 |
Losun á klöpp | 30 | m3 |
Ídráttarrör | 500 | m |
Ídráttarbrunnar | 2 | stk |
Eldsneytislögn | 60 | m |
Afgreiðslu/lágpunktsbrunnar | 2 | stk |
Fyllingar og burðarlög | 370 | m3 |
Steypt flughlað, 300 mm | 320 | m2 |
Malbikað þjónustusvæði, 70 mm | 335 | m2 |
Árekstrarvörn | 40 | m |