Home Fréttir Í fréttum 11.04.2022 Hverfið mitt 2021- 2022 – austur. Ærslabelgir

11.04.2022 Hverfið mitt 2021- 2022 – austur. Ærslabelgir

303
0
Mynd: Austurfrett.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:

<>

Hverfið mitt 2021- 2022 – austur. Ærslabelgir, útboð 15455

Í síðustu hverfakosningum Hverfið mitt 2021-22 kusu íbúar í Breiðholti, Árbæ, Grafarvogi, Kjalarnesi og Grafarholti og Úlfarsárdal, að setja upp ærslabelgi í hverfunum.

Verkið felst í útvegun, uppsetningu og frágangi yfirborðs vegna 9 ærslabelgja í borgarlandinu, ásamt allri jarð- og lagnavinnu sem verkinu fylgir þ.m.t. gerð drenlagna, lagnaskurða, uppsetningu ljósastaura, smíði setgirðingar og aðlögunar á landi þar sem það á við.

Áætlað er að uppsetningu allra ærslabelgjanna verði lokið fyrir 15. ágúst 2022.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00, 25. mars 2022. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef  Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15, 11. apríl 2022.