Home Fréttir Í fréttum 05.04.2022 Bíldudalshöfn – Steypt þekja 2022

05.04.2022 Bíldudalshöfn – Steypt þekja 2022

90
0
Bíldudalshöfn. Mynd: samskip.is

Hafnarsjóður Vesturbyggðar óskar eftir tilboðum í verkið „Bíldudalshöfn – Steypt þekja 2022“.

<>

Helstu verkþættir eru:

· Grófjafna yfirborð, þjappa og fínjafna undir steypu.

· Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 2390 m2.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. ágúst 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 21. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. apríl 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.