Home Fréttir Í fréttum 05.04.2022 Þorlákshöfn – Svartaskerbryggja, endurbygging stálþils 2022

05.04.2022 Þorlákshöfn – Svartaskerbryggja, endurbygging stálþils 2022

274
0

Hafnarstjórn Þorlákshafnar óskar eftir tilboðum í verkið „Þorlákshöfn – Svartaskerbryggja, endurbygging stálþils 2022“.

<>

Helstu verkþættir eru:

  • Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi bryggju.
  • Reka niður 146 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ 22-800 og eina einfalda sömu gerðar
  • Steypa 62 akkerisplötur og uppsetning staga.
  • Steypa um 230 m langan kantbita með pollum og setja upp kanttré, stiga og þybbur.

 

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. október 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með þriðjudeginum 22. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. apríl 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.