Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Götulýsing – Útskipting á lömpum 2022. EES útboð nr. 15452.
Lauslegt yfirlit yfir verkin:
Útboðið varðar útskiptingu lampa á staurum í stíga- og gatnalýsingarkerfi Reykjavíkurborgar auk uppfærslu á varbúnaði í staurum þar sem það á við. Starfssvæðið er innan sveitarfélags Reykjavíkurborgar að meðtöldu Kjalarnesi.
Verktaki fær afhenta lampa með fortengdum strengjum sem ná niður að tengiopi staura, arma á staura þegar það á við en verktaki þarf að útvega varbúnað í staurum eftir því sem við á.
Útskiptin munu eiga sér stað víðsvegar um borgina en þau verða skipulögð þannig að ekki þurfi að ferðast á milli borgarhverfa á sama degi og skal verktaki gera ráð fyrir því í tilboði sínu. Allar magntölur útboðsins eru áætlaðar og geta breyst.
Helstu magntölur útboðsins eru:
Niðurtekt/uppsetning lampa 4.000 stk.
Varbúnaður í staura 2.000 stk
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 10:30, föstudaginn 18. mars 2022.
Smellið á íslenska fánann neðst á síðunni til þess að fá vefsíðuna upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða ,,Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvefútbo innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 19. apríl 2022.