Home Fréttir Í fréttum 29.04.2022 Bygging hjúkrunarheimilis í Hveragerði

29.04.2022 Bygging hjúkrunarheimilis í Hveragerði

230
0
Mynd: Mats wibe / hveragerdi.is

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir, Heilbrigðisráðuneytið og Hveragerðisbær, auglýsa eftir umsóknum byggingaraðila (aðalverktökum) um þátttökurétt í lokuðu alútboði á fullnaðarhönnun og byggingu 22 rýma hjúkrunarheimilis andspænis núverandi dvalar- og hjúkrunarheimilinu ÁS við Hverahlíð 19 í Hveragerði.

<>

Hér er um að ræða forval, þar sem aðilar verða valdir með tilliti til hæfi og reynslu. Leitað er að aðilum, sem geta tekið að sér að hanna og byggja 22 rýma hjúkrunarheimili fyrir fasta fjárhæð samkvæmt alútboðsaðferð.

Áætluð húsrýmisþörf er 1.430  m2 (BR).

Allar nánari upplýsingar um útboðið er að finna í útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign.is

Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið er að finna á heimasíðu Ríkiskaupa.