Home Fréttir Í fréttum Stöðva framkvæmdir við Lagarfljótsbrú um mánuð vegna mistaka

Stöðva framkvæmdir við Lagarfljótsbrú um mánuð vegna mistaka

278
0
Mynd: Austurfrett.is

Fresta hefur þurft endurbótum á gólfi Lagarfljótsbrúar um mánaðarskeið sökum mistaka í afhendingu á þeim stálmottum sem notaðar eru á brúargólfið.

<>

Verkinu, sem staðið hefur yfir frá nóvember og átti að ljúka í lok febrúar, er enn ekki lokið en það er sérstakur brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar sem séð hefur um vinnuna.

Verkinu var ekki hægt að ljúka á réttum tíma þar sem röng stærð af stálmottum þeim er settar eru yfir timburgólf brúarinnar voru afhentar.

Von er á réttum plötum strax í byrjun aprílmánaðar og verður verkinu framhaldið og lokið í kjölfarið að sögn upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar.

Mottuvandræðin reyndust þó ekki alfarið slæm þegar allt kom til alls því sökum tafanna hefur brúarflokkurinn náð að lagfæra fimm aðrar smærri brýr á svæðinu hingað til.

Heimild: Austurfrett.is