Home Fréttir Í fréttum Nýr fram­kvæmd­a­stjór­i Ein­ing­a­verk­smiðj­unn­ar

Nýr fram­kvæmd­a­stjór­i Ein­ing­a­verk­smiðj­unn­ar

478
0
Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir, nýr framkvæmdastjóri Einingarverksmiðjunnar ehf.

Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Einingarverksmiðjunnar ehf.

<>

Hún tekur við af Sigurbirni Óla Ágústssyni sem hefur stýrt verksmiðjunni síðastliðin 28 ár. Guðbjörg tekur til starfa í dag og verður Sigurbjörn eigendum og stjórnendum til ráðgjafar fram eftir árinu.

Spennandi tímar eru fram undan hjá Einingaverksmiðjunni sem flytur um mitt ár í nýtt og mun stærra verksmiðjuhúsnæði sem er verið að reisa við Koparhellu í Hafnarfirði.

Auk þess verður stór hluti framleiðslubúnaðar endurnýjaður og uppfærður. Í nýja húsnæðinu mun gefast tækifæri til að stórauka framleiðslugetu verksmiðjunnar til að anna aukinni eftirspurn eftir vörum félagsins.

Guðbjörg Sæunn var áður forstöðumaður fráveitu Veitna árið 2019 með áherslu á að innleiða stefnuáætlun og auka skilvirkni. Hún tók síðan við nýju sviði, „Framtíðarsýn og rekstur“, í mars 2020 í breyttu skipulagi fyrirtækisins með áherslu á að auka skilvirkni í fjárfestingum og rekstrarkostnaði með stöðugum umbótum.

Guðbjörg Sæunn útskrifaðist með BS próf í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2010 og með M.Sc próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2012.

Að námi loknu hóf Guðbjörg störf á framleiðslusviði Össurar, fyrst sem ferilseigandi á CNC renniverkstæðinu þar til hún tók við öryggis- og umbótasviði framleiðslu. Síðar starfaði hún sem framleiðslustjóri Sílikondeildar.

Heimild: Frettabladid.is