Vegagerðin óskar eftir tilboðum í byggingu Eyjafjarðarbrautar vestri (821-02/03) meðfram Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit. Verkið felst í nýbyggingu Eyjafjarðarbrautar vestri, Miðbrautar og nýrra tenginga á um 3,58 km kafla. Einnig byggingu nýrra heimreiða, samtals um 0,25 km..
Helstu magntölur eru:
– Fylling úr námum 65.700 m3
– Fylling úr skeringum 40.830 m3
– Fláafleygar úr námum 9.060 m3
– Fláafleygar úr skeringum 6.890 m3
– Ræsalögn 661 m
– Styrktarlag 19.290 m3
– Burðarlag 7.160 m3
– Rofvörn og síulag 27.070 m3
– Tvöföld klæðing 32.340 m2
– Vegrið 2.850 m
– Frágangur fláa 46.780 m2
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. júlí 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með sunnudeginum 20. febrúar 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 8. mars 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.