Home Fréttir Í fréttum 30.03.2022 Íþróttamannvirki – Borg í Grímsnesi

30.03.2022 Íþróttamannvirki – Borg í Grímsnesi

358
0
Mynd: dfs.is

Sveitarfélagið Grímsnes- og Grafningshreppur óskar eftir þátttakendum til að taka þátt í opnu alútboði, vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á íþróttamiðstöðinni á Borg í Grímsnesi. Farið verður yfir allar umsóknir og hæfi og geta umsækjanda metin út frá þeim upplýsingum sem þeir leggja fram með umsókn sinni.

<>

Fyrirhuguð er stækkun á núverandi íþróttamiðstöð að Borg í Grímsnesi. Nýbygging skal vera á tveimur hæðum, annarsvegar íþróttasalur á neðri hæð þar sem hægt verður að stunda almennar æfingar og hinsvegar skrifstofurými á efri hæð hússins.

Heildarstærð íþróttamiðstöðvar verður um 680 m2.

Verkkaupi hefur sett byggingunni og starfsemi hennar sjálfbærni- markmið sem mikilvægt er að fylgja eftir. Lögð er megináhersla á að verkið verði unnið á sem hagkvæmastan hátt. Alútboð þetta nær yfir verkfræðihönnun og reisingu hússins. Verkkaupi mun ráða arkitekt til verksins.

Heiti verkefnisins er: Íþróttamannvirki – Borg í Grímsnesi.

  • Helstu verkþættir eru:
  • Verkfræðihönnun húss
  • Byggingarleyfisumsókn
  • Jarðvinna
  • Undirstöður, burðarvirki og ytra byrði
  • Frágangur utanhúss
  • Frágangur innanhúss, þ.m.t íþróttagólfs og uppsetning á föstum búnaði
  • Uppsetning og fullnaðarfrágangur allra lagna- og rafkerfa
  • Frágangur lóðar

Tengiliður verkkaupa mun afhenda alútboðsgögn að ósk umsækjanda í gegnum tölvupóst, ragnar@gogg.is. Gefa skal upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og verða gögnin afhent umsækjenda þriðjudaginn 22. febrúar 2022. Skilafrestur tilboðs er 30. mars 2022, klukkan 12.00.

Ekki er hægt að skila inn umsókn eftir að uppgefinn umsóknarfrestur er útrunninn.

Upphaf framkvæmda:

Framkvæmd hefst þegar verkkaupi hefur með formlegum hætti tekið tilboði bjóðanda.

Lok framkvæmda: 15. júní 2023.