Home Fréttir Í fréttum 08.03.2022 Rafstöðvarvegur – Göngu- og hjólastígur. Toppstöðin – Bíldshöfði

08.03.2022 Rafstöðvarvegur – Göngu- og hjólastígur. Toppstöðin – Bíldshöfði

448
0
Mynd: Visir.is

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Rafstöðvarvegur – Göngu- og hjólastígur. Toppstöðin – Bíldshöfðiútboð 15427

Verkið felst í gerð hjóla- og göngustíga. Innifalið er jarðvegsskipti samkvæmt teikningum og frágangur á yfirborði í samræmi við útboðsgögn, þar með talið gerð áningarstaðar. Gerð stíglýsingar við nýja stíga er hluti af verkinu sem og gerð steinhleðslu.

Helstu magntölur eru: 
Upprif á malbiki                   1.500   m²
Gröftur                                2.000   m³
Fyllingar                              3.000   m³
Steinhleðsla                          190     m²
Mulningur                            3.800   m2
Malbikun                             3.500   m2
Hellulögn                               600   m2
Ljósastaurar                            29   stk
Rafstrengir(stíglýsing)             800   m

Lokaskiladagur verksins er 31. júlí 2022.

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 12:00, þriðjudaginn 22. febrúar n.k., á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is  Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30 þann 8. mars 2022.