Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í hreinsun (vélsópun) á götum, bílastæðum við götur, gönguleiðum, bílastæðum við skóla, leikskóla, hluta skólalóða og við aðrar stofnanir eftir því sem við á og óskað er eftir.
Einnig er um að ræða þvott á miðeyjum við ákveðnar götur sem og þvott á ákveðnum götum og stofnanalóðum (bílplönum við stofnanir).
Helstu magntölur eru:
Götur, sópun: Heildarlengd: 70 km
Götur, þvottur: Heildarlengd götukanta 10 km
Stígar og stéttar, sópun: Heildarlengd: 110 km
Stofnanalóðir, sópun: Flatarmál: 65.000 m2
Stofnanalóðir, þvottur: Flatarmál: 7.000 m2
Miðeyjar, þvottur: Flatarmál: 2.300 m2
Götum og gönguleiðum er skipt upp í forgangsflokka, forgang 1 og forgang 2. Helstu safngötur og tengibrautir eru í forgangi 1 ásamt stofnstígum og gönguleiðum við fyrrgreindar götur.
Allarstofnanalóðir eru einnig í forgangi 1 sem og þvottur á miðeyjum. Í forgangi 2 eru húsagötur, gönguleiðir sem þeim tilheyra ásamt þvotti á ákveðnum götum og stofnanalóðum (bílaplön við stofnanir).
Nánari skiptingu á milli forgangsflokka 1 og 2 má sjá í grein „1.0.2 Upplýsingar um vinnusvæðið“ og á meðfylgjandi yfirlitskortum.
Afhending útboðsgagna fer í gegnum útboðskerfið Tendsign
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 11:00 þann 14. febrúar 2022.
Nánari upplýsingar og gögn er að finna á Tendsign.is