Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í jarðvegsskipti og jöfnun undir gerfigras ásamt malbikun stétta á nýjum æfingavelli á félagssvæði KA.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með föstudeginum 7. Janúar 2022.
Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en 25. janúar 2022 kl. 11:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.