Home Fréttir Í fréttum Iðnaðarmannsdrama í Héraðsdómi

Iðnaðarmannsdrama í Héraðsdómi

350
0
Héraðsdómur Reykjavíkur. mynd/GVA

Iðnaðarmannsdrama í Héraðsdómi – Stækkaði bílskúrinn og reisti garðskála en fékk ekki borgað.

<>

Hjónum var stefnt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur vegna þess að þau höfðu ekki borgað iðnaðarmanni fyrir umfangsmikla vinnu við heimili þeirra. Dómur féll í málinu í dag við Héraðsdóm Reykjavíkur.

Stefnandi í málinu, sem var kunningi hjónanna, tók að sér að stækka bílskúrinn þeirra og reisa garðskála við húsið. Þá vann hann við klæðningar og einangrun í lofti sólstofu, sem og við veggklæðningar.

Reikningur fyrir þessa vinnu var gefinn út þann 1. nóvember árið 2020 og var hann upp á rúmlega 7,8 milljónir króna. Hjónin greiddu ekki reikninginn en þau töldu tímafjölda vera ofmetinn.

Fyrir rétti kröfðust þau sýknu en til vara að kröfur iðnaðarmannsins yrðu stórlækkaðar.

Dómkvaddur matsmaður, sem er byggingatæknifræðingur og húsasmíðameistari, lagði fram matsgerð fyrir dómnum um eðlilegan kostnað við þessa vinnu.

Komst hann að þeirri niðurstöðu að hæfileg upphæð á reikningnum hefði verið 5.754.863 kr. en ekki þær tæplega 7,8 milljónir sem iðnaðarmaðurinn rukkaði.

Það var niðurstaða dómara við Héraðsdóm í dag að dæma hjónin til að greiða upphæð í samræmi við mat hins dómkvadda matsmanns. Voru þau því dæmd til að greiða iðnaðarmanninum 5.754.863 kr. og tæplega eina og hálfa milljón í málskostnað.

Dóminn mál lesa hér

Heimild: DV.is