Home Fréttir Í fréttum Skóflustunga tekin að langtímaleiguhúsnæði Bjargs í Grindavík

Skóflustunga tekin að langtímaleiguhúsnæði Bjargs í Grindavík

288
0
Skóflustunguna tóku f.v. Sigurður Óli Þorleifsson, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur, tveir fulltrúar frá Bjargi, Hlynur Helgason frá HH smíði sem sér um verkið, Fannar Jónasson bæjarstjóri og Hafdís Helgadóttir frá Verkalýðsfélagi Grindavíkur.

Í dag var fyrsta skóflustungan tekin að nýju leiguhúsnæði Bjarg íbúðafélags sem stefnt er að koma í leigu í janúar á næsta ári.

<>

Um er að ræða langtímaleiguhúsnæði fyrir tekjulága einstaklinga. Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB.

Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu.

Bæjaryfirvöld hafa í töluverðan tíma reynt að koma því í kring að Bjarg byggi upp íbúðir í Grindavík og fengi lóð og var hún skipulögð á nýju Víkurhópssvæði í Hópshverfi.

Í júlí 2020 staðfesti Grindavíkurbær 12% stofnframlag til byggingar á íbúðunum sem verða staðsettar við Víkurhóp 57.

Áætlaður heildarkostnaður er 326.861.326 kr. og hlutur Grindavíkurbæjar 39.223.359 kr. að meðtöldum gatnagerðargjöldum, tengigjöldum og byggingarleyfisgjöldum sem teljast hluti af stofnframlagi bæjarfélagsins.

Þröstur Bjarnason er verkefnastjóri hjá Bjargi og einn af þeim sem tók skóflustunguna í dag. “Ég reikna með að við getum farið að auglýsa úthlutun eftir svona tvo mánuði, sem yrði kannski í lok febrúar. Við myndum sjá til þess að það yrði vel auglýst hér á svæðinu. Afhending íbúða yrði þá í byrjun ársins 2023. Eitt ár héðan í frá.”

Þröstur segir að um sé að ræða 10 íbúðir, frá 2ja herbergja upp í 4 herbergja. Reglur fyrir því að fá leigusamning í íbúðum Bjargs má finna hér. En um er að ræða langtíma, örugga leigu fyrir þá sem fá leigusamning.

Leigan er þó háð tekjumörkum eins og sjá má í úthlutunarreglum.  Fólk þarf að vera búið að vera á atvinnumarkaði og greiða í stéttarfélag í að lágmarki tvö ár. Biðlisti sé í gangi að íbúðum Bjargs en heimafólk njóti ákveðins forgangs.

Þröstur segir að vel komi til greina að byggja fleiri íbúðir verði eftirspurnin mikil. “Það er bara sveitarfélagið sem þarf að byrja, við erum alveg tilbúnir í meira ef ásóknin verður mikil.”

Bjarg hefur vaxið mikið undanfarin ár og hefur byggt upp fjölda íbúða víða um land eins og sjá má hér. 

Útlit og skipulag fyrirhugaðra íbúða við Víkurhóp má finna hér. 

Heimild: Grindavik.is