Home Fréttir Í fréttum Streymisfundur um landfyllingu í Nýja Skerjafirði

Streymisfundur um landfyllingu í Nýja Skerjafirði

221
0
Mynd: Reykjavik.is

Streymisfundur um frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdar við landfyllingu í Skerjafirði verður haldinn og sendur út 13. janúar 2022 kl. 19.30. Fundurinn verður sendur út á vef og Facebooksíðum Reykjavíkurborgar.

<>

Reykjavíkurborg lagði fram í nóvember 2021 frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdar við landfyllingu í Nýja Skerjafirði.

Hægt er að leggja fram skriflegar athugasemdir og þurfa þær að berast eigi síðar en 25. janúar 2022 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar.

Í þessari frummatsskýrslu er gerð grein fyrir fyrirhugaðri framkvæmd og áhrif hennar metin á eftirfarandi þætti: Gróður, strand- og sjávarlífríki, fuglalíf, strauma, fornminjar, verndarsvæði, landslag og ásýnd, umferð, umferðarmyndun og öryggi, hljóðvist og loftgæði, útivist, hjóla- og göngustíga.

Framkvæmdin er talin hafa óveruleg áhrif á strauma, fornminjar, umferð, umferðarmyndun- og öryggi, hljóðvist og loftgæði ásamt útivist og göngustíga. Hins vegar telur framkvæmdaraðili að framkvæmdin hafi talsvert neikvæð áhrif á fuglalíf og verndarsvæði, og verulega neikvæð áhrif á gróður, strand- og sjávarlífríki.

Streymisfundurinn er sendur út á síðunni Nýi Skerjafjörður og Facebooksíðu Reykjavíkurborgar. Hér er viðburðurinn.

Tenglar

Upplýsingasíða um fundinn og skipulagið

Landfylling í Nýja Skerjafirði – Reykjavíkurborg

Nýi-Skerjafjörður – Fornleifaskrá og húsakönnun

Heimild: Reykjavik.is