Home Fréttir Í fréttum 25.01.2022 Snæfellsnesvegur (54), Ketilstaðir – Gunnarsstaðir – eftirlit og ráðgjöf

25.01.2022 Snæfellsnesvegur (54), Ketilstaðir – Gunnarsstaðir – eftirlit og ráðgjöf

183
0
Snæfellsnesvegur Mynd: Skessuhorn.is

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með  endurbyggingu Snæfellsnesvegar (54) á um 5,4 km kafla í Hörðudal.  Innifalið í vekinu er bygging tveggja brúa, 43 m langrar brúar yfir Skrautu og 52 m brúar yfir Dunká.

<>

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð 30. júní 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 7. janúar 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  25. janúar 2022.

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.  Föstudaginn  28. janúar 2022 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.