Home Fréttir Í fréttum Styttist í tilboð í fjármögnun og smíði brúar yfir Hornafjörð

Styttist í tilboð í fjármögnun og smíði brúar yfir Hornafjörð

165
0
Tölvuteikning af fyrirhugaðri brú yfir Hornafjarðarfljót. VEGAGERÐIN

Tilboð í smíði nýrrar brúar yfir Hornafjarðarfljót með einkafjármögnun og vegtolli verða opnuð um miðjan febrúar. Þetta er fyrsta verkið sem boðið er út á á grundvelli nýlegra laga um samvinnuverkefni.

<>

Á næsta ári er gert ráð fyrir að ný Ölfusárbrú og vegur yfir Öxi fari í samskonar útboðsferli.

Í fréttum Stöðvar 2 var fjallað um tólf kílómetra styttingu hringvegarins þvert yfir Hornafjörð með nýrri brú og tilheyrandi vegagerð. Þetta er fyrsta verkið sem boðið er út af þeim sex, sem tilgreind eru í lögum um samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir.

Tölvuteikning af nýrri leið yfir Hornafjörð. Verkinu fylgja alls fjórar nýjar brýr og nítján kílómetrar af nýjum vegum.
VEGAGERÐIN

„Þau fara í svona forútboð þar sem menn leita leiða að finna þá sem bjóða bestu hugmyndirnar og bestu fjármögnunina,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.

Í Hornafirði er verktökum ætlað að fjármagna verkið til helminga á móti álíka framlagi úr ríkissjóði en fá síðan að innheimta vegtoll til að ná upp í kostnað, líkt og gert var í Hvalfjarðargöngum.

Teikning af nýrri Ölfusárbrú austan Selfoss.
VEGAGERÐIN.

„Bæði Hornafjarðarfljótið sem og ný brú yfir Ölfusá eru þar svona fyrst á döfinni – og síðan vegurinn yfir Öxi einnig. Og það má nefna að Sundabrautin er auðvitað líka hluti af þessu verkefni, eða sem sagt með þessum hætti.

Við erum að vinna að þessu öllu saman og það skýrist vonandi með vorinu, og í vetur, hvenær nákvæmlega lokaútboðin verða á þessum framkvæmdum,“ segir Sigurður Ingi.

Horft niður í Berufjörð af veginum um Öxi.
EGILL AÐALSTEINSSON

Útboðsferli Hornafjarðarfljóts er raunar komið svo langt að útboðsgögn hafa núna verið send til verktakahópa, að undangengnu forvali, og er stefnt að því að tilboðin verði opnuð þann 15. febrúar, að sögn Óskars Arnar Jónssonar, forstöðumanns framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar.

Miðað er við að framkvæmdir hefjist á næsta ári og að þær taki þrjú til þrjú og hálft ár. Þá er stefnt að því að nýr vegur yfir Öxi sem og ný brú yfir Ölfusá fari í útboðsferli á næsta ári.

Heimild: Visir.is