Vegagerðin og Borgarverk hafa skrifað undir samning um framkvæmd við verkið Snæfellsnesvegur (54), Ketilsstaðir – Gunnarsstaðir.
Verkið felst í endurbyggingu Snæfellsnesvegar á um 5,4 km kafla. Innifalið í verkinu er bygging tveggja brúa á Skraumu og Dunká.
Vegurinn er að mestu endurbyggður í vegstæði núverandi vegar með nokkrum lagfæringum.
Brúin á Skraumu verður 43 m löng í þremur höfum, byggð upp af samverkandi stálbitum og steyptu brúardekki. Milliundirstöður eru tvær hallandi stálsúlur í hvorri undirstöðulínu með stífandi krossum á milli.
Brúin á Dunká verður 52 m löng staðsteypt uppspennt plötubrú í tveimur höfum. Milliundirstaðan er lóðrétt staðsteypt súla.
Hún munu standa á steyptri undirstöðu sem grunduð er á klöpp vestan megin við megin rennsli árinnar, þar sem klöpp liggur ofan árfarvegarins.
Gert er ráð fyrir að í flóðum eða klakahlaupum geti vatn og ís náð upp á súlur brúanna án þess að valda skaða.
Verktaki hefur undirbúning framkvæmda fljótlega, framkvæmdir hefjast í mars 2022 en gert er ráð fyrir að verkinu sé að fullu lokið sumarið 2023.
Heimild: Vegagerðin