F.h. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Fossvogsskóli – endurbætur, EES útboð nr. 15280
Um er að ræða endurbyggingu i þremur samtengdum skólabyggingum Fossvogsskóla. Vesturland 750 m2, Meginland 2350 m2 og Austurland 1.480 m2.
Í Vesturlandi og Meginlandi er aðallega um að ræða endurnýjun glugga, einangrun og klæðningu útveggja, endurnýjun timburs í þaki og þakklæðningu, rif og förgun ásamt öllum innanhússfrágangi.
Framkvæmdir í Austurlandi eru nokkuð minni að umfangi. Markmið með endurbyggingu Fossvogsskóla er að fjarlægja rakaskemmdir og afleiðuefni rakaskemmda.
Bjóðandi tekur jafnframt að sér stýriverktöku á þeim verkþáttum sem verða boðnir út siðar og eru ekki hluti af þessu útboði.
Helstu magntölur:
Einangrun og klæðning utanhúss 1.300 m2
Endurnýjun glugga og útihurða 87 stk
Allur frágangur innanhúss i Vesturlandi 750 m2
Meginlandi 235 m2
Hluta Austurlands 1.480 m2
Gólfefni 1900 m2
Innveggir 1200 m2
Lagnir, loftræsing. raflagnir ofl
Verklok
1. áfangi 6. ágúst 2022
2. áfangi 20 júlí 2023
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 14. desember 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 11:00, 10. janúar 2022.