Home Fréttir Í fréttum Góðar viðtökur og fyrstu húsin risin

Góðar viðtökur og fyrstu húsin risin

184
0
Fyrstu húsin eru risin í Hagabyggð, sjávarlóðum í landi Glæsibæjar í Hörgársveit. Svo gott sem allar lóðir í fyrri áfanga eru seldar og unnið að skipulagi annars áfanga. Í allt verða 30 lóðir í Hagabyggð. Mynd/ Ólafur Aðalgeirsson.

„Viðtökur við þessum lóðum voru mun betri en okkar væntingar gerðu ráð fyrir, það má orða það svo að þær voru hreint út sagt frábærar,“ segir Ólafur Aðalgeirsson einn eigenda og talsmaður jarðarinnar Glæsibæjar í Hörgársveit og stýrir verkefni um uppbyggingu á íbúðarbyggingum í Hagabyggð.

<>

Vinna við fyrsta áfanga hófst í fyrrasumar, en í þeim áfanga er gert ráð fyrir 17 lóðum. Nýverið hófst skipulagsvinna við annan áfanga en í honum er gert ráð fyrir 13 lóðum. Alls verða því 30 lóðir í boði í Hagabyggð.

Í fyrrasumar hófst innviðagerð vegna lóðanna í fyrsta áfanga, en um er að ræða stórar einbýlishúsalóðir. „Langflestum lóðunum hefur verið úthlutað, innviðagerð er á góðu róli, allar lagnir komnar að lóðamörkum og fráveitukerfi komið í gagnið.

Þá er lokið við að hafa jarðvegsskipti í öllum vegum og fyrsta burðarlag er komið á götur. Þetta hverfi er hugsað sem dreifbýlisbyggð til lögheimilisskráningar en alls ekki að þarna byggist upp þéttbýli,“ segir Ólafur.

Framkvæmdir hafnar á 5 lóðum
Hann segir lóðarhafa koma víða að, langflestir þó af Eyjafjarðarsvæðinu, en einnig hefur fólk sem býr fyrir sunnan og vestan sóst eftir lóðum í Hagabyggð.

„Íbúasamsetningin virðist ætla að verða í anda þess sem við spáðum fyrir um, að uppleggi fólk eldra en 45 ára með uppkomin börn með mátulegum undantekningum.“

Ólafur segir að nú séu hafnar framkvæmdir á 5 lóðum og fleiri eru í startholum að stökkva af stað. „Ég gerir ráð fyrir að tveir til þrír grunnar verði teknir til viðbótar á árinu ef tíðarfar leyfir.

Fyrstu húsin risu bara nú fyrir skemmstu þegar bílskúr og gestahús risu á lóð númer 6 við Hagatún. Mér finnst viðbúið að fyrstu íbúarnir flytji inn á næsta ári,“ segir hann.

Örfáar lóðir eftir
Einungis eru 1 til 2 lóðir eftir í fyrri áfanga svæðisins, skipulagsvinna við annan áfanga er að hefjast og úthlutun í þeim áfanga verður um leið og þeirri vinnu er lokið og framkvæmdaleyfið komið í hús.

„Við styðjumst áfram við sömu hugmyndafræði, þ.e. að útbúa rúmgóðar sjávarlóðir, þar sem einkunnarorðin eru náttúra, næði og frelsi,“ segir Ólafur og vísar m.a. til þess að í næsta nágrenni séu góðir möguleikar á heilbrigðri útivist og skilmálar deiliskipulags séu ekki þröngt afmarkaðir heldur gefst lóðarhöfum og hönnuðum þeirra færi á að koma með sínar hugmyndir að húsum án þess að skilmálar marki djúp spor.

Heimild: Vikudagur.is