Carbfix ohf. óskar eftir tilboðum í verkefnið CFIK-2021-01 “CODA Terminal”.
Tilgangur útboðsins er að fá tilboð í ráðgjafavinnu vegna fyrirhugaðrar móttöku- og förgunarstöðvar fyrir CO2 í Straumsvík og kallast verkefnið CODA Terminal.
Verkefnið byggir á tækni sem Carbfix ohf. hefur þróað á Hellisheiði og gengur út á það að leysa CO2 í vatni og dæla niður í berglög þar sem það breytist í steindir á innan við tveimur árum.
Því er dælt í hentugar bergtegundir, svo sem basalt sem er hvarfgjarnt og hefur mikið holrými.
Kolsýrða vatnið hvarfast við basaltið og þá losna málmar á borð við kalsíum, magnesíum og járn.
Með tímanum bindast þessir málmar uppleysta CO2 og mynda karbónat steindir sem fylla upp í holótta basaltið.
Steindirnar eru stöðugar í þúsundir ára og því er CO2 geymslan örugg og varanleg.
Útboðsgögn afhent: | 09.11.2021 kl. 15:00 |
Opnun tilboða: | 09.12.2021 kl. 14:00 |
Sjá nánari upplýsingar í útboðsgögnum.