Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir ganga vel við Skógarböðin utan við Akureyri

Framkvæmdir ganga vel við Skógarböðin utan við Akureyri

294
0
Skógarböðin eru staðsett steinsnar frá Akureyri. Mynd: Facebooksíða Skógarbaðanna

Framkvæmdum við Skógarböðin, nýjan baðstað sem opna mun rétt utan við Akureyri í byrjun næsta árs, miðar vel. Nýlega var gengið frá ráðningu framkvæmdastjóra og var Tinna Jóhannsdóttir ráðin í það starf.

<>

Tinna hefur víðtæka reynslu á sviði stjórnunar og markaðsmála. Hún hefur undanfarin fjögur ár starfað sem forstöðumaður markaðsmála hjá Smáralind og Regin þar sem hún hefur haft umsjón með öllu markaðsstarfi auk þess að sinna ýmiskonar viðskiptaþróunarverkefnum.

Þá hefur Tinna setið í fjölmörgum stjórnum m.a. hjá Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu og Markaðsstofu Kópavogs. Tinna er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands auk gráðu frá Háskólanum á Bifröst í viðskiptafræði með áherslu á markaðssamskipti og Diplóma í mannauðsstjórnun frá EHÍ.

„Ég hlakka mikið til að flytja norður og takast á við þetta spennandi og jafnframt krefjandi verkefni.

Á undanförnum árum hef ég viðað að mér fjölbreyttri reynslu m.a. í markaðs- og mannauðsmálum sem ég tel að muni nýtast vel í þessu starfi.

Skógarböðin verða einstaklega spennandi áfangastaður sem ég hef óbilandi trú á að verði vel tekið meðal Íslendinga, sem og erlendra ferðamanna,” segir Tinna og er full tilhlökkunar fyrir nýja starfinu.

Pláss fyrir 200 manns
N4 fjallaði ítarlega um Skógarböðin í sumar, heimsótti verkstað og ræddi við aðaleigendur baðanna. Hér má sjá innslagið sem tekið var fyrir þáttinn Að norðan.

Þar kom m.a. fram að heitt vatn úr Vaðlaheiðargöngur verður nýtt í böðin. Laugarsvæðið er 500 fm að stærð og samanstendur af tveimur laugum.

Þá verður einnig þurrsána og kaldur pottur á svæðinu. Húsakosturinn við böðin eru um 730 fm að stærð og mun hann hýsa búningsklefa, veitingasal og afgreiðslu en alls geta 200 gestir verið í böðunum í einu.

Gestir upplifa orku skógarins
Í tilkynningu sem Skógarböðin sendu frá sér segir stjórn Skógarbaðanna að mikill fengur sé fyrir fyrirtækið að fá Tinnu til liðs við sig.

„Tinna býr yfir víðtækri reynslu á sviðum sem munu skipta sköpum í okkar rekstri, sérstaklega í markaðsmálum, þjónustustjórnun og gæðamálum.

Við hlökkum mikið til samstarfsins.“ Stefnt er að opnun snemma árs 2022 en mikill metnaður hefur verið lagður í alla hönnun og að gestir upplifi útsýnið, kyrrðina og orku skógarins sem best.

Áhugasamir geta fylgst með gangi mála á Facebook síðu Skógarbaðanna en þar eru reglulega settar inn fréttir af gangi mála. Þá verður fljótlega hægt að kaupa gjafabréf í böðin sem gætu hentað vel í jólapakkann.

Heimild: N4.is