Home Fréttir Í fréttum RARIK hefur framkvæmdir vegna 900 nýrra íbúða á Selfossi

RARIK hefur framkvæmdir vegna 900 nýrra íbúða á Selfossi

323
0
Uppsetning rofastöðvar í Björkustykki á Selfossi. Mynd: RARIK

Rafmagnshönnun er lokið og framkvæmdir á vegum RARIK eru að hefjast við þrjú ný hverfi á Selfossi þar sem stefnt er að því að rísi alls 900 íbúðir auk 30 iðnaðar- og atvinnuhúsalóða.

<>

Þetta er eitt stærsta verkefni í þéttbýli sem RARIK hefur unnið að í langan tíma.

Framkvæmdir eru hafnar við stofnkerfi/heimtaugar í svokallað Björkustykki á Selfossi en þar er áætlað að reisa yfir 100 íbúðarhús auk 20 lóða fyrir iðnaðar- og þjónustuhúsnæði.

Vestan Eyravegar við Víkurheiði, er einnig unnið að lóðum fyrir um 10 stór iðnaðarhús á vegum sveitarfélagsins Árborgar.

Þar fyrir austan, í svonefndri Austurbyggð eru hafnar framkvæmdir á svæði þar sem ráðgert er að rísi um 500 íbúðarhús.

Fyrir áramót verður síðan byrjað að leggja stofnkerfi/heimtaugar í fyrsta áfanga Jórvíkur sem er nýtt byggingasvæði er rétt við Björkustykkið þar sem reist verða um 300 íbúðarhús.

Sem fyrr segir er búið að hanna rafmagn fyrir öll þessi svæði og verða settar upp átta dreifistöðvar til að þjóna íbúum.

Heimild: RARIK.is