Jarðvinna vegna viðbyggingar á Keflavíkurflugvelli gengur vel, en frá því að fyrsta skóflustungan var tekin í júní hefur verið grafið út fyrir 49.000 rúmmetra holu sem verður á endanum 55.000 rúmmetrar og 7,5 metrar að dýpt.
Þetta segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia í samtali við fréttastofu.
Fyrirhuguð bygging verður 20 þúsund fermetrar að stærð og áætlaður heildarkostnaður er 20,8 milljarðar króna.
Áformað er að hún verði tekin í notkun árið 2024, en þar verður meðal annars viðbót við verslunarrými og biðsvæði flugstöðvarinnar auk þess sem fjórum nýjum hliðum með landgöngubrúm verður bætt við.
En það er ekki síst endurnýjað farangurskerfi sem markar ákveðin tímamót. Kerfið verður að hluta til í nýju byggingunni en mun teygja sig inn í gömlu bygginguna inn á svæði komufríhafnar.
„Með þessari endurnýjun er verið að skipta út sprengjuleitarvélum vegna nýrra Evrópureglugerða sem taka gildi innan fárra mánaða,“ segir Guðjón.
„Nýju vélarnar eru umfangsmeiri en þær gömlu og því þarf að endurhanna og breyta farangurskerfinu í kringum þær.“
Meðal annars verður sett upp nýtt komufæribandakerfi með hallandi böndum svo hægt sé að koma fleiri töskum fyrir og auðvelda aðgengi farþega að töskum þegar þær renna inn í komusalinn. Böndin verða fimm talsins þegar framkvæmdum lýkur.
„Í september fóru rétt rúmlega 140.000 töskur í gegnum brottfarakerfið okkar sem er að meðaltali um 4500 töskur á dag,“ segir Guðjón og bætir við að þar sé um að ræða töskur sem koma úr innritun sem og töskur tengifarþega.
„Hvað varðar komuhlutann þá erum við að bæta þjónustuna við farþega í komusalnum með breytingunum og vinna okkur í haginn að geta tekið við fjölgun farþega síðar meir.“
Heimild: Visir.is