Home Fréttir Í fréttum Þörf á „nýju Breiðholti“ til að leysa vandann

Þörf á „nýju Breiðholti“ til að leysa vandann

63
0
Mynd: VÍSIR/VILHELM

Formaður VR segir að húsnæðismálin verði þungamiðja komandi kjarabaráttu. Neyðarástand blasi við ef húsnæðisþörfinni verður ekki mætt, sem nemi nýju Breiðholti að hans mati.

<>

Í síðustu kjaraviðræðum var lagt upp með að lækka lifikostnað launamanna með því að berjast fyrir vaxtalækkun og lækkun á leigukostnað.

Vextir hafa lækkað en fólk á húsaleigumarkaði hefur staðið eftir að mati formanns VR.

„Ný húsaleigulög til að stórauka vernd þeirra sem eru á leigumarkaði náðust ekki í gegn.

Sömuleiðis húsnæðisliðurinn í vísitölunni og þrengja að verðtryggðu lánunum. Þetta eru allt hlutir sem náðust ekki í gegn,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR
VÍSIR/VILHELM

Hann segir sveitarfélögin ekki hafa staðið sig við að fjölga íbúðum. Ástandið á húsnæðismarkaðinum sé orðið skelfilegt og eigi bara eftir að versna ef ekkert verður að gert.

Samtök iðnaðarins hafa gagnrýnt borgaryfirvöldin harðlega fyrir að standa sig ekki við að fjölga íbúðum.

Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti með vísan í ástandið á húsnæðimarkaðinum í borginni.

Ragnar fagnar stuðningi mótaðila sinna, og vísar þar í orð Sigurður Hannessonar framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, sem sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að ljóst væri að húsnæðismálin yrðu stór hluti af komandi kjarabaráttu.

„Það mun lenda mjög líklega á verkalýðshreyfingunni að fara í átak í þessum efnum.

Ég vona að aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld og sveitarfélög taki höndum saman og fari í þjóðarátak í uppbyggingu á húsnæði. Og við þurfum ekkert minna en nýtt Breiðholt eins og það var byggt upp á sínum tíma. Það vantar bara það mikið,“ segir Ragnar.

Mannvirkajstofnun segir þörf fyrir 3.500 nýjar íbúðir á ári, en samkvæmt þeirri spá þyrfti að reisa 17.500 íbúðir á næstu fimm árum.

Ragnar vill koma Íslendingum í sambærileg kjör og íbúar Norðurlandanna búa við þegar kemur að vaxtastigi, stórauka leiguvernd og að stórauka framboð á húsnæði.

„Við höfum verið að þrýsta á aðila að hefja viðræður nú strax. Við megum engan tíma missa og höfum engan tíma í sjálfum sér. Skaðinn er að mörgu leyti skeður.“

Heimild: Visir.is