Home Fréttir Í fréttum 05.11.2021 Sjóvarnargarður við Eiðsgranda

05.11.2021 Sjóvarnargarður við Eiðsgranda

135
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Sjóvarnargarður við Eiðsgrandaútboð nr. 15159.

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 12. október 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00,  5. nóvember 2021.

 

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið felst í upprifi og endurbyggingu sjóvarnargarðs við Eiðsgranda.

Um er að ræða ca. 480 m. langan garð sem nær frá hringtorgi á mótum Hringbrautar og Ánanausta í vestir að kverk landfyllingar við Fiskislóð 1 í austri.

Upprifið efni/stórgrýti verður flokkað og endurnýtt, einnig verður aðflutt efni frá lagerum notað í verkið.

Nálægir lagerar eru staðsettir við Eiðsgranda, Ánanaust og á Fiskislóð, en einnig eru grjótlagerar í Gufunesi og á Álfsnesi.

Verktaki þarf einnig mögulega að geta boðið uppá efni í garðin ef á þarf að halda.

Kröfur eru gerðar til verktaka um að þeir hafi unnið sambærileg verk og hafi starfsfólk sem hafi reynslu af hleðslu sjóvarna.