Home Fréttir Í fréttum Útboð vegna innanhúsbreytinga á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar

Útboð vegna innanhúsbreytinga á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar

120
0

Grindavíkurbær óskar eftir tilboðum í verkið „Bæjarskrifstofur Grindavíkur, innanhússbreytingar”. Vettvangsskoðun verður í boði á morgun, miðvikudaginn 28. október.

<>

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Endurbætur og stækkun á skrifstofuhúsnæði bæjarskrifstofa Grindavíkur sem staðsettar eru á 2. og 3. hæð í verslunar og þjónustumiðstöð Grindavíkur, Víkurbraut 62. Í megindráttum eru bæjarskrifstofur Grindavíkur að stækka sig inn í 127 m² rými, þar sem áður var Bókasafn Grindavíkur, ásamt endurbótum á núverandi húsnæði.

Helstu verkþættir eru:
– Rif og förgun, veggir, loft, gólf, hurðar, stálsmíði, málun, innréttingar, raflagnir og loftræsting.

Verkinu skal að fullu lokið þann 1. júní 2016

Hægt verður að nálgast útboðsgögn á bæjarskrifstofu Grindavíkur, Víkurbraut 62, 240 Grindavík frá og með 26. október n.k. eða óska eftir gögnum á tölvutæku formi án endurgjalds á netfangið armann@grindavík.is eða í síma 420-1107.
Bjóðendum er boðið til vettvangsskoðunar miðvikudaginn 28. október 2015 kl. 13:00
Tilboðgjafar skulu vera búnir að skila inn tilboði eigi síðar en miðvikudaginn 11. nóvember 2015, kl. 10:00, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.