F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Esjumelar 2021. Skjólræktun, útboð nr. 15320
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 28. september 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 12. október 2021.
Lýsing á verkefninu:
Framkvæmdin felst í gerð gróðursvæða fyrir skjólræktun í jaðri atvinnu- og iðnaðarsvæðisins að suðaustanverðu á Esjumelum. Staðsetning gróðursvæða sem tilheyra þessu verki er fengin úr gildandi deiliskipulagi fyrir verkið.
Helstu framkvæmdarliðir eru gerð gróðursvæða (jarðvegsskipti með áburðarbættum gróðurjarðvegi), gróðursetning trjáa og runnar, uppbinding lauftrjáa og uppsetning á skjólvarnargirðingum.
Helstu magntölur eru:
Jarðvegsskipti 425 m3
Fylling 425 m3
Skjólvarnargirðingar 1012 m
Gróðursetning tré 600 stk
Gróðursetning runnar 159 stk
Uppbinding 192 stk