Home Fréttir Í fréttum 12.10.2021 Vestfjarðarvegur (60) um Gufudalssveit: Kinnarstaðir – Þórisstaðir, eftirlit og ráðgjöf

12.10.2021 Vestfjarðarvegur (60) um Gufudalssveit: Kinnarstaðir – Þórisstaðir, eftirlit og ráðgjöf

165
0
Tölvuteiknuð mynd af brúnni yfir Þorskafjörð.

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í  eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Vestfjarðarvegur (60) um Gufudalssveit, Kinnarstaðir – Þórisstaðir.

<>

Verkið felur í sér nýbyggingu Vestfjarðarvegar á um 2,7 km kafla ásamt byggingu 260 m langrar steyptrar brúar yfir Þorskafjörð.

Vegurinn er alfarið byggður í nýju vegsvæði sem tengist Vestfjarðarvegi í báða enda.

Brúin er steypt eftirspennt bitabrú í sex höfum.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 30. júní 2024

Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með sunnudeginum 12.  september 2021  og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. október 2021.

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.

Föstudaginn 15. október  2021 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.