Jesse Gary, nýr forstjóri Century Aluminum, segir það munu kosta um 15 milljarða að reisa skálann.
Markmiðið sé að sækja enn meiri verðmæti í afurðirnar. Norðurál hafi nýverið samið við Landsvirkjun um kaup á meiri orku sem geri félaginu kleift að ráðast í þá uppbyggingu.
„Landsvirkjun hefur verið góður samstarfsfélagi. Við höfum framlengt samning okkar við Landsvirkjun til þriggja ára, eða til 2026, og samið um afhendingu á meiri orku svo reisa megi steypuskálann.
Þar verða framleiddir eins konar sívalningar úr áli sem verða seldir til frekari vinnslu í Evrópu, í stað þess að flytja álið út óunnið í frekari bræðslu,“ segir Jesse.
Kínverjar skipta um gír
Jesse segir þá ákvörðun Kínastjórnar að hægja á uppbyggingu áliðnaðar munu hafa mikil áhrif.
„Síðustu tvo áratugi eða svo hafa álverin í Kína mætt aukinni spurn eftir áli en Kína fór þá úr því að vera smáframleiðandi í að vera stærsti álframleiðandi heims.
En nú hafa Kínverjar greint frá því að þeir hyggist láta staðar numið við uppbyggingu álvera, í því skyni að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, og miða framleiðslugetuna við 46 milljónir tonna.
Til samanburðar hljóðar eftirspurnin í heiminum nú upp á 65 milljónir tonna af áli á ári.
Og ef áform Kínverja ganga eftir mun í fyrsta sinn í tvo áratugi skapast þörf fyrir að byggja upp framleiðslugetu á Vesturlöndum til að mæta vaxandi eftirspurn.“
Heimild: Mbl.is